Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

lag dagsins: Aha - Stay on these Roads (lćf)Birgir Örn Steinarsson

Ah-a hélt lokatónleika sína í Noregi núna um helgina og þjóðin grét. Þetta yrði svipað og ef Sálin hans Jóns míns myndi skyndilega ákveða að leggja árar í bát og landsmenn fengu einungis eitt tækifæri til þess að bera goðin sín augum. Reyndar er Ah-a líka fræg fyrir utan heimalandið þannig að harðir aðdáendur lögðu í langa pílagrímsför bara til þess að sjá Morthen Harket og félaga saman í hinsta sinn. Maður hlýtur að spyrja sig hver galdurinn sé? Einnig vil ég fá að vita hvaða vatn Morten Harket er að drekka - því maðurinn lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 30 ára - þó komnir skuggalega nálægt því að halda upp á sextugsafmælin sín. Maður bara áttar sig ekki á þessu...

Hér er svo vídjó frá tónleikunum sjálfum - en við ætlum að rifja upp besta lag Ah-a - Stay on these Roads - tekið af tónleikum. Morten syngur eins og engill...




Ah-a -Stay on these Roads (læf)

Skrifa athugasemd

Prófíll