Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Tenglar

Gagnasafn

lag dagsins. Dum Dum Girls - Jail La laBirgir Örn Steinarsson


Þetta er ein af uppáhaldshljómsveitum Thurston Moore úr Sonic Youth. Það eitt er næg ástæða til þess að tékka á þeim. Dum Dum Girls koma frá Kaliforníu og gáfu út sína fyrstu breiðskífu á vegum Sub Pop fyrr á árinu. Fínasta plata þar á ferð hlaðin lo-fi índírokkpoppslögurum. Nafn sveitarinnar er óður til The Vaselins en sú ágæta sveit gaf út plötuna Dum Dum á sínum tíma. Hér má svo greina áhrif frá The Ronettes, The Ramones, Patti Smith og Spacemen 3! Ágætis kokteill það bara...

Já, svo eru þær með lúkkið á hreinu. Bettie Page yrði stolt!

Jail La La

Skrifa athugasemd

Prófíll