vasadisko.bloggar.is - splúnkunýtt eða týnt... biggi maus bloggar um tónlist...
lag dagsins: Caribou - OdessaBirgir Örn Steinarsson
Þetta lag kom út fyrr í ár á ágætis breiðskífu Caribou er heitir Swim. Platan fékk fínar viðtökur þegar hún kom út en hún virðist rétt núna vera að ná inn á radarinn hjá meginstraumnum. Aðallega vegna þess að þetta lag hér er víst notað í tölvuleiknum Fifa 11. Þar er heil grein af tónlistarplöggi sem fer algjörlega framhjá mér. Ætli þetta sé ekki svipað fyrir krakka í dag eins og fyrir okkur eldra fólkið að heyra gott lag í sjónvarpsþætti og tengja við það? Veit að þetta virkar því frændi minn veðrast allur upp ef við erum að ræða um lög sem hann hefur heyrt í FIFA leikjunum. En er séns fyrir tölvunotendur að fá að vita hvaða lög þeir eru að heyra í leikjunum? Alveg til í að fá komment á það... En jæja. Caribou minnir óneitanlega á finnsku raf-sófapopparana í Röyksopp. Svo mikið að sumir hafa ruglast á þeim. Það svífur sami auglýsingatónlistar stílinn á þessum sveitum.
Caribou er þó sólósveit - skipuð stærðfræðingnum Daniel Victor Snaith. Hann hefur einnig gefið út undir nafninu Manitoba. Þetta meikar sens - því tónlistin er mjög stærðfræðileg. Get t.d. ímyndað mér að það sé gott að læra undir stærðfræðipróf með þessa tónlist í eyrunum. Jæja.. nóg röfl, meiri músík! Þetta lag gæti hæglega orðið slagari á alternatíf útvarpsstöð hér á landi... bara synd að hún sé ekki til!
Caribou - Odessa
