vasadisko.bloggar.is - splúnkunýtt eđa týnt... biggi maus bloggar um tónlist...
Topp 5 listar
Áður en internetið komst inn á hvert heimili vann ég í plötubúð. Þá var ekki séns að eignast tónlist nema að a) kaupa hana út í búð eða b) fá hana lánaða hjá einhverjum og taka hana upp á segulband. Eftir að hafa kynnst úrvalinu í búðinni mjög vel sá ég að það væru nokkrir listamenn sem ég yrði að forðast. Ástæðan var ekki sú að tónlist þeirra væri slæm, heldur voru þeir búnir að gefa út svo mikið af diskum. Ég er þannig gerður að um leið og búið er að kveikja hjá mér áhuga á einhverjum tónlistarmanni - sekk ég mér ofan í hann strax og verð að eignast allt. Maður mátti skrifa á sig diska og ég þorði ekki að snerta á sumum tónlistarmönnum af ótta við að fá þá ekkert útborgað þann mánuðinn. Þannig að ef það kom út safnplata með viðkomandi listamanni á meðan ég var að vinna í búðinni - og hún þá kannski sett á fóninn - var ég í djúpum skít. Sönn saga.
En hvar á maður að byrja að leita? Hér verða settir Topp 5 listar með hinum og þessum listamönnum yfir bestu plötur þeirra - með smá umsögn um hverja - svo að þú getir fengið einhverja hugmynd um hvar best sé að byrja.